Fornbílasýning 2024
Fornbílasýning í Sigtúnsgarði Selfoss | Afnotaleyfi
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar veitir Bifreiðaklúbb Suðurlands tímabundið og takmarkað leyfi til afnota af landi sveitarfélagsins fyrir sýningu fornbíla í Sigtúnsgarði á Selfossi.
Leyfið er útgefið samanber lýsingu, afstöðumynda/korta og annarra samskipta sem vísað er í í fylgiskjölum. Forráðamenn húsa og nágrannar við framkvæmdasvæði hafa verið upplýstir um afnotaleyfi þetta og gera ekki við það athugasemdir. Við útgáfu þessa leyfis hefur leyfishafi skuldbundið sig til að uppfylla meðfylgjandi skilmála. Ávallt skal tryggja aðgengi sorphirðu á þeim svæðum sem afnotaheimildin nær yfir.
Gildistími: 22.06.2024 frá kl.10:00 - 19.00