Framkvæmdir við Tryggvagötu
Sveitarfélagið hefur gefið út tímabundið afnotaleyfi til 31.07.2023 vegna þrengingar á kafla Tryggvagötu vegna byggingaframkvæmda.
Nauðsynlegt þykir að færa gönguleið og þannig þrengja akrein til suðurs á kafla til að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Framkvæmdaraðili mun stilla upp öryggisvegg til að aðgreina gangandi og hjólandi frá akandi umferð og merkja í samræmi við gildandi reglur um vinnusvæðamerkingar.