Grassláttur í Árborg | Útboð 2023
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í: „Grassláttur í Árborg“
Verkið felur í sér að slá tilgreind svæði á Eyrarbakka og Stokkseyri í Sveitarfélaginu Árborg. Sjá nánar á meðfylgjandi teikningum á útboðsvef. Verkið er boðið út til tveggja ára, með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn, tvisvar sinnum.
Helstu magntölur eru:
- Sláttur 1. stig: 55.100 m² (í hvert skipti)
- Sláttur 2. stig: 25.100 m² (í hvert skipti)
- Sláttur 3. stig: 10.300 m² (í hvert skipti)
Verkinu skal að fullu lokið 20. september 2024
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðan di ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 föstudaginn 21. apríl 2023
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar