Hérðasskjalasafn Árnesinga - Húsnæði
Héraðsnefnd Árnesinga bs. óskar eftir tilboðum í verkið: Héraðsskjalasafn Árnesinga - húsnæði
Verkið felst í útvegun á framtíðarhúsnæði fyrir Héraðsskjalasafn Árnesinga. Um er að ræða um það bil 700 fermetra húsnæði miðsvæðis á Selfossi, nýtt eða notað, sem þarf að henta sérstaklega þörfum héraðsskjalasafnsins samkvæmt nánari útlistun í útboðsgögnum.
Verklok eru á haustmánuðum árið 2022.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 8. apríl 2021. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Guðmund Hjaltason á skrifstofu Eflu á Suðurlandi með tölvupósti í netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Eflu að Austurvegi 1 - 5 á Selfossi fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 22. apríl 2021 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Héraðsnefnd Árnesinga bs.