Hönnunarverðlaun Íslands 2020 - tilnefningar og verðlaunaafhending
Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fara fram þann 29. janúar næstkomandi og verður afhendingu streymt klukkan 11.00
Hvaða framúrskarandi verk og verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs stóðu upp úr á árinu 2020?
Veitt verða Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.
Hér er viðburðurinn á Facebook
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.
Við hlökkum til að eiga hátíðlega stund saman, með rafrænum hætti!