Hver er ferðinni heitið?
Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir. Öll sem vinna að rannsóknum og/eða fræðilegum skrifum á sviði æskulýðsmála, sem og þau sem starfa á vettvangi eru hvött til að senda inn ágrip að erindum, eða hugmynd að uppleggi fyrir málstofur.
Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir: Hver er ferðinni heitið? hefur verið færð til fimmtudagsins 8. apríl 2021, kl. 9:00-16:00.
Enn er kallað eftir erindum og málstofum og hefur frestur til innsendingar ágripa verið færður til 17. mars 2021.
Ágrip skulu send á Jakob Frímann Þorsteinsson | jakobf@hi.is
Lengd ágripa: 100 - 150 orð
Lengd erinda: 20 mínútur alls (erindi 15 - 17 mín. og stuttar umræður 3 - 5 mín.)
Heildstæðar málstofur geta verið 40 - 60 mínútur að lengd.
Almennt þátttökugjald er 1.500 krónur. Háskólanemar og fyrirlesarar greiða ekkert.
Skráning er nauðsynleg – smellið hér fyrir upplýsingar og skráningu
Lykilfyrirlesarar:
- Tim Corney, dósent frá Victoria University í Melbourne, Ástralíu
- Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra æskulýðsvettvangsins, handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar og meistaranemi í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands
- Ársæll Már Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Nánari upplýsingar veitir Jakob Frímann Þorsteinsson | jakobf@hi.is
Að ráðstefnunni standa: Námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Rannsóknarstofa í tómstundafræði, Rannsóknarstofa í bernsku og æskulýðsfræðum og Æskulýðsráð.
Ráðstefnan er unnin í góðu samstarfi við SAMFÉS, FÍÆT – Félag íþrótta- æskulýðs- og tómstundafulltrúa og FFF – Félag fagfólks í frítímaþjónustu.