Kvikmyndatökur í Árborg
Sveitarfélagið hefur veitt leyfi til tímabundina afnota af vegum Árborgar, þá nánar tiltekið á grónum íbúagötum á Selfossi, fjórar staðsetningar á Eyrarbakka og atriði við kirkjuna á Stokkseyri.
Um er að ræða frekar lítið umfang, með eins litlu raski og hægt er fyrir alla. Götum verður ekki lokað, heldur verður handstýrð umferðarstjórnun með keilum, í gulum vestum og stöðvunarmerki þegar það á við í gegnum framkvæmdarsvæðið.
Íbúar verða látnir vita af framkvæmdinni í gegnum facebook síður íbúa, upplýsingarspjöld og bankað uppá þar sem þess er nauðsyn.
Að sjálfsögðu verður allra smitvarna gætt í hvívetna, grímuskylda og 2 mtr fjarlægðartakmarkanna verður gætt. Farið er fram á að aka á móti einstefnu á Heiðarvegi til mjög skamms tíma.