Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna
Leikfélag Selfoss verður með leiklistarnámskeið fyrir 16 ára og eldri í Litla leikhúsinu við Sigtún.
Lögð verður áhersla á karaktersköpun og þar með grunn atriði í leiklist eins og radd og líkamsbeitingu. Leiðin að karaktersköpuninni verður unnin með æfingum úti á gólfi og í gegnum spuna.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Rakel Ýr Stefánsdóttir leikkona og leikstjóri.
Námskeiðið fer fram á miðvikudögum og fimmtudögum, alls fjögur skipti
- Miðvikudaginn 8. mars kl. 19:00 - 21:30
- Fimmtudaginn 9. mars kl. 19:00 - 21:30
- Miðvikudaginn 15. mars kl. 19:00 - 21:30
- Fimmtudaginn 16. mars kl. 19:00 - 21:30
Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að leika til að mæta hvort sem þú ert að koma í fyrsta skipti eða ert með mikla reynslu.
Námskeiðsverð er 15.000 kr. og 10.000 kr. fyrir félaga hjá Leikfélagi Selfoss.
Skráning er á leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is