Lóðir undir atvinnuhúsnæði, sala á byggingarrétti
Árborg auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði á átta lóðum á Víkurheiði 3, 5, 13, 18, 19, 21, 20 og 22.
Um er að ræða vel staðsettar lóðir á iðnaðar- og atvinnusvæði við Eyraveg sunnan Selfoss.
Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá aðilum sem hyggjast byggja upp atvinnustarfsemi á svæðinu. Svæðið er skilgreint sem athafnarsvæði og ætlað undir hreinlega atvinnustarfsemi. Yfirstandandi er deiliskipulagsbreyting á svæðinu sem áætlað er að ljúki í október næstkomandi.
Stærð lóðanna er frá 4.351 m2 til 8.617 m2. Á lóðunum er nýtingahlutfall 0,35 til 0,40 og má því byggja að hámarki 1.740 m2 til 3.447 m2 byggingar á þessum lóðum. Hámarks þakhæð er 15 m.
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgigögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 13:00 föstudaginn 29. september 2023.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn. Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Útboðskerfi Ajour | byggingarréttur á lóðum
Niðurstaða útboðs verður birt á vef Árborgar.