Lóðir undir par- og raðhús
Árborg auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði. Um er að ræða 12 lóðir fyrir alls 38 íbúðir. Sjö parhúsalóðir og fimm raðhúsalóðir.
Stærð lóða á bilinu 1.020 - 1.972 m2 . Um er að ræða vel staðsettar lóðir nærri sterkum þjónustu kjörnum
Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá einstaklingum og/eða lögaðilum sem hyggjast byggja íbúðir í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Svæðið er hluti af uppbyggingarsvæði í landi Bjarkar sem liggur sunnan við Suðurhóla og meðfram Eyrarvegi.
Lóðirnar sem um ræðir eru:
Móstekkur 34 - 36, 38 - 40, 42 - 44, 46 - 48, 60 - 68, 50 - 58, 61 - 63, 65 - 67, 69 - 71, 91 - 99, 81 - 89, og 73 - 79.
Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar 1. febrúar 2024
Á svæðinu er í gildi deiliskipulag sem öðlaðist gildi með auglýsingu þann 14. júní 2019 ásamt breytingum sem samþykktar hafa verið frá þeim tíma.
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour innan auglýsts skilafrests sem er kl. 13:00 föstudaginn 17. nóvember 2023.
Ajour | Tilboð í byggingarrétt Móstekkur
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn. Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Niðurstaða útboðs verður birt á vef Árborgar.