Lokun á Austurvegi, milli Heiðmerkur og Laugardælavegar
Lokun á umferð í vesturátt á Austurvegi, milli Heiðmerkur og Laugardælavegar.
Lokað verður fyrir umferð um Austurveg í vesturátt á meðan stofnlögn vatnsveitu er endurnýjuð
Umferð smærri bíla er beint um Langholt, Eingjaveg og Rauðholt en stærri bílar fara um Gaulverjabæjarveg, Suðurhóla og Eyrarveg.
Akrein verður lokað dagana 16. og 17. maí á meðan malbik verður sagað
Opnað verður fyrir umferð yfir Hvítasunnuhelgina og framkvæmdir hefjast svo að fullu þriðjudaginn 21. maí með lokunum í þrjár vikur.
Áætlað er að verkið taki um þrjár vikur.