Malbikun á þjóðvegi 1
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:
Þriðjudaginn 15. september er stefnt á að malbika á Þjóðvegi 1 frá Landvegamótum í austur. Veginum verður lokað í vestur og hjáleið um Landveg og veg númer (281-01), umferð í austur ekur meðfram vinnusvæði.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.82.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 24:00
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.