Mannamót 2023 - fimmtudaginn 19. janúar
Mannamót hefur verið fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu undanfarin ár en þar hafa um 800 gestir mætt.
Í ár eru skráð í heildina um 230 ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni sem sýnendur og þar af um 75 af Suðurlandi
Sunnlensk ferðaþjónusta verður áberandi og hafa rótgróin fyrirtæki sem og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref, og öll flóran þar á milli, skráð sig til leiks og munu segja frá þjónustu sinni og vöruúrvali.
Markmið Mannamóta er að gera ferðaþjónustunni á landsbyggðinni auðveldara fyrir að kynna þjónustu sína fyrir fólki í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Viðburðurinn er því frábær vettvangur til að efla tengslin við ferðaþjónustuna á Suðurlandi og landsbyggðinni allri.
Ferðaþjónustan er lykilatvinnuvegur Suðurlands og verið ein stærsta „byggðaþróunaraðgerð“ á Íslandi síðustu ár.
Lífsgæði okkar íbúa hefur stóraukist með þeirri fjölbreyttu og auknu þjónustu sem blómstrar víðs vegar um svæðið, þökk sé gestunum okkar.
Vonandi sjáum við ykkur sem flest á Mannamótum!
Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem gest: https://www.markadsstofur.is/skraning-gesta