Menntamorgunn | Íslenska í ferðaþjónustu
Hvort sem þú ert starfandi í ferðaþjónustu, áhugamanneskja um íslensku eða einfaldlega forvitin um hvernig við getum stutt og styrkt íslenskuna, þá er þessi viðburður fyrir þig.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna bjóða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar miðvikudaginn 4. desember frá 11:00 - 12:00.
Góðir gestir flytja erindi:
Viltu tala íslensku við mig?
Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands og verkefnisstjóri Íslenskuþorpsins.
“Það skilja allir ensku”
Harpa Björg Guðfinnsdóttir, mannauðsstjóri hjá Reykjavik Sightseeing og tengdum félögum
Við „megum og eigum“ að efla íslenskuna
Nichole Leigh Mosty, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðþjónustunnar.
“Þau vilja ekki læra íslensku” - Hvað ber að hafa í huga við innleiðingu íslensku á vinnustað
Alexandra Leonardsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ.
Fundarstjóri: Þuríður Halldóra Aradóttir, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness
Fundurinn verður í beinu streymi á Facebook
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar,
SAF og Markaðsstofa landshlutanna