Miðbær Selfoss | Deiliskipulagsbreyting
Samkvæmt 3. mgr. 41. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar, vegna breytinga á deiliskipulagi Miðbæjarins á Selfossi.
Miðbær Selfoss | Deiliskipulagsbreyting
Bókun Bæjarráðs Árborgar 29.6.2023:
Mál frá fundi skipulagsnefndar 17.5.2023
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi 18.1.2023, tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi Miðbæjarins á Selfossi.
Bæjarstjórn lagði til á sama fundi að sú breyting yrði gerð frá tillögu skipulags- og byggingarnefndar að íbúum verði gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum um deiliskipulagstillöguna á framfæri í ráðgefandi könnun meðal íbúa í gegnum vefinn Betri Árborg.
Gildandi deiliskipulag var samþykkt 08.07.2021 og auglýst í B. deild Stjórnartíðinda 30.08.2021. Skipulagsreiturinn nær til svæðis sem skilgreind eru í aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 sem miðsvæði. Svæðið afmarkast af Eyravegi og Austurvegi til norðurs og aðliggjandi íbúðarlóðum við Tryggvagötu til austurs, Sunnuvegi til suðurs og Kirkjuvegi til vesturs. Skipulagssvæðið er alls um 6,6 ha að flatarmáli. Stækkunin nemur lóðinni Kirkjuvegur 13, en svæðið var fyrir breytingu um 6,8ha. Deiliskipulagsbreyting tekur til vestur, og suðurhluta svæðis. Meginbreytingin er að bætt er við syðst á svæðið niðurgrafinni göngugötu, nefnd Garðatröð, sem tengist við Kirkjuveg að vestan og austurstíg Sigtúnsgarðs að austan. Sunnan við Garðatröð og austan við austurstíginn á móts við lóðina Sigtún 2 er bætt við byggingarreitum fyrir lágreist hús að hámarki 2 hæðir og ris. Lóðamörkum lóða sunnan Miðstrætis er breytt og nýjar lóðir afmarkaðar. Lóðirnar Eyravegur 3 og 5 eru sameinaðar í eina lóð. Ytra umfang byggingarreita ofanjarðar norðan Miðstrætis. Með breytingunni er heimilað hámarksbyggingarmagn aukið á svæðinu, mest í kjöllurum og með nýjum lóðum/byggingarreitum.
Tillagan hefur verið auglýst í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í Fréttablaðinu, Dagskránni og Lögbirtingarblaði 22. febrúar 2023, með athugasemdafresti til 5. apríl 2023. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Vegagerðinni. Einnig bárust athugasemdir frá Magnúsi Jóhannssyni og Valdimar Árnasyni.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir innsendar umsagnir og athugasemdir.
Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir Vegagerðarinnar og samþykkir að framlengja girðingu til suðurs sem aðskilur akgreinar á Eyravegi vegna vinstri beygju inn á Hótel Selfoss. Þá verður rétt staðsetning gangbrautar færð vestar, eins og hún er í dag.
Vegna ábendingar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, verður innsláttarvilla lagfærð.
Vegna athugasemda Magnúsar Jóhannssonar vill nefndin árétta að merktur göngu og hjólastígur frá norðri til suðurs í gegnum svæði á Aðalskipulagsuppdrætti, er settur út með minni nákvæmni en ef um væri að ræða deiliskipulag. Tekið verður tillit til þess að tryggja gönguleiðir í gegnum skipulagssvæðið.
Varðandi ábendingar um bílaumferð í gegnum Miðstræti og Brúarstræti, þá er skipulagsnefnd sammála þeirri hugsun, að takmarka beri umferð ökutækja gegnum svæðið eins og kostur er, enda fellur það undir tvo af efnisflokkum BREEAM um landnotkun og samgöngur.
Vegna ábendinga um undirgöng til handa gangandi vegfarendum við Eyraveg og Austurveg, þá er sú tillaga góð, en er ekki til umfjöllunar í auglýstri breytingartillögu.
Vegna athugasemda Valdimars Árnasonar tekur skipulagsnefnd undir að tveggja hæða hús svo nærri Sigtúni 2, sé helst til of hátt, og leggur til við hönnuði að gögnum verði breytt, þannig að umfang bygginga verði minnkað með lækkun í einnar hæðar hús með risi í samræmi við framlögð skuggavarpsgögn. Samhliða þeirri breytingu verða skipulagsgögn uppfærð.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43.gr. skipulagslaga, með fyrirvara um lagfærð gögn í samræmi við athugasemdir og svörun nefndar, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna og feli skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 42. gr. sömu laga.
Þá felur nefndin skipulagsfulltrúa að svara þeim sem gáfu umsagnir og þeim sem gerðu athugasemdir.
Skipulagsnefnd áréttar fyrri bókun nefndarinnar frá 16.1.2023, að tillagan verði sett í ráðgefandi íbúakönnun áður en Bæjarstjórn Árborgar tekur tillöguna til lokaafgreiðslu.
Niðurstöður ráðgefandi íbúakönnunarinnar var þannig að 1.655 íbúar tóku þátt og sögðust 1468 íbúar hlynnt(ir) breytingunum en 187 andvíg(ir).“
Bæjarráð Árborgar þakkar fyrir innsendar umsagnir og athugasemdir.
Bæjarráð tekur undir athugasemdir Vegagerðarinnar og samþykkir að framlengja girðingu til suðurs sem aðskilur akgreinar á Eyravegi vegna vinstri beygju inn á Hótel Selfoss. Þá verður rétt staðsetning gangbrautar færð vestar, eins og hún er í dag.
Vegna ábendingar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, verður innsláttarvilla lagfærð.
Vegna athugasemda Magnúsar Jóhannssonar, bæjarráð áréttar að merktur göngu og hjólastígur frá norðri til suðurs í gegnum svæði á aðalskipulagsuppdrætti, er settur út með minni nákvæmni en ef um væri að ræða deiliskipulag. Tekið verður tillit til þess að tryggja gönguleiðir í gegnum skipulagssvæðið.
Varðandi ábendingar um bílaumferð í gegnum Miðstræti og Brúarstræti, þá er bæjarráð Árborgar sammála þeirri hugsun, að takmarka beri umferð ökutækja gegnum svæðið eins og kostur er, enda fellur það undir tvo af efnisflokkum BREEAM um landnotkun og samgöngur.
Vegna ábendinga um undirgöng til handa gangandi vegfarendum við Eyraveg og Austurveg, þá er sú tillaga góð, en er ekki til umfjöllunar í auglýstri breytingartillögu.
Vegna athugasemda Valdimars Árnasonar tekur bæjarráð undir að tveggja hæða hús svo nærri Sigtúni 2, sé helst til of hátt, og hefur verið gerð breyting á gögnum, sem felur í sér að efra hús vestan við Sigtún 2, verður einnar hæðar hús í samræmi við framlögð skuggavarpsgögn, og hefur þar af leiðandi minni áhrif á Sigtún 2.
Samhliða þeirri breytingu hafa skipulagsgögn verið uppfærð.
Bæjarráð Árborgar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 42. gr. sömu laga og auglýsa niðurstöður bæjarráðs. Þá felur nefndin skipulagsfulltrúa að svara þeim sem gáfu umsagnir og þeim sem gerðu athugasemdir.
Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi