Nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu
Takið daginn frá til að ræða nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu á ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Selfossi þann 8. september | kl. 09:00 - 12:15
Brýnt er að auka matvælaframleiðslu í heiminum verulega á næstu áratugum vegna sífellt vaxandi íbúafjölda heimsins. Í þessu felast miklar áskoranir þar sem stór hluti af nýtanlegu gróðurlendi heimsins er þegar notað í landbúnaðarframleiðslu. Nýtanlegir fiskistofnar eru margir komnir að þolmörkum og vaxandi skortur er á orku og vatni til fæðuframleiðslu.
Í þessum áskorunum felast jafnframt mikil tækifæri fyrir Ísland sem ætlunin er að varpa ljósi á í þessum viðburði sem er samstarfsverkefni Orkídeu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins, Háskólans á Bifröst, Íslandsstofu, Lax-inn fræðslumiðstöðvar, Matís, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Ölfus Cluster.
Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg
Dagskrá
09:00 | Ávarp |
09:05 | Daði Már Kristófersson, HÍ Helstu ógnanir og tækifæri sem tengjast matvælaframleiðslu |
09:20 | Esteban Baeza, Company Future Farms Solutions, Almeria, Spáni Trends and Challenges in high-tech greenhouse cultivation |
09:35 | Julián Cuevas González, Department of Agronomy, Almeria University, Spáni Protected cultivation of tree crops |
09:50 | Kaffihlé 20 mín |
10:10 | Hrannar Smári Hilmarsson, LBHÍ: Jarðrækt og tækifæri tengd kornrækt |
10:25 | Erna Björnsdóttir, Íslandsstofa: Tækifæri tengd útflutningi á íslenskum matvælum |
10:40 | Rósa Jónsdóttir / Kolbrún Sveinsdóttir, Matís: Framleiðsla nýrra próteina fyrir matvæli og fóður |
10:55 | Helga Gunnlaugsdóttir, Orkídea: Lífgas og áburðarframleiðsla úr lífrænum auðlindum |
11:11 | Þorvaldur Arnarsson, Landeldi ehf.: Tækifæri í landeldi |
11:25 | NN: Útflutningur á íslenskum garðyrkjuafurðum |
11:40 | Panelumræður |
12:15 | Fundarlok |
Nánari upplýsingar