Skilyrði fyrir notkun á akstursþjónustu
Af gefnu tilefni viljum við árétta að notendur akstursþjónustu fatlaðra og aldraðra mega ekki nýta almenna akstursþjónustu ef þeir falla undir eftirfarandi:
a. Eru í sóttkví
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku)
c. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverki, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.)