Styrkur til félagasamtaka vegna greiðslu fasteignaskatts
Frestur félagasamtaka til að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum í Sveitarfélaginu Árborg rennur út 15. mars n.k.
Frestur til að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum í Sveitarfélaginu Árborg sem nýttar eru fyrir starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, s.s. menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi eða vinnu að mannúðarstörfum, rennur út 15. mars n.k.
Skilyrði er að viðkomandi fasteign sé skráð eign almenns félags eða að það sé handhafi þinglýsts húsaleigusamnings til a.m.k. eins árs og að fram komi í samningnum að félagið skuli greiða fasteignagjöld af hinu leigða húsnæði.
Sótt er um styrkinn á „ Mínar síður “ á vef sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Árborg
Ingibjörg Garðarsdóttir | fjármálastjóri