Tilboð | Götusópun í Árborg
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið: Götusópun í Árborg.
Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með 19. apríl 2021 kl. 18:00.
Notkunarleiðbeiningar um kerfið
Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.