Tilkynning | Framkvæmdir við nýtt hringtorg
Hafnar eru framkvæmdir við gerð einfalds hringtorgs á mótum Eyrarbakkavegar og Hólastekks/Víkurheiðar á Selfossi auk allra vegtenginga og stíga við hringtorgið.
Verkinu tilheyra einnig veglýsing, vegmerkingar ásamt breytingum á lagnakerfum veitufyrirtækja, m.a. færsla og nýlagnir vatns- og hitaveitu, rafstrengja og fjarskiptalagna auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.
Verkið er samvinnuverkefni Sveitarfélagsins Árborgar og Vegagerðarinnar. Þegar gerð þessa hringtorgs lýkur, þá mun koma tenging frá Eyrarbakkavegi við Hólastekk sem mun liggja sunnan við Björkurstykki og tengjast að Suðurhólum rétt austan við núverandi tjaldsvæði.
Samið var við verktakafyrirtækið Verktækni ehf um gerð hringtorgsins eftir útboð. Hafin er vinna verktaka við gerð hjáleiðar. Samkvæmt verksamningi skal verkið vera að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar