Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2023
Er framúrskarandi kennari, verkefni og/eða menntaumbætur í þínu sveitarfélagi? Því ekki að tilnefna þau til íslensku menntaverðlaunanna?
Íslensku menntaverðlaunin 2023 verða afhent að Bessastöðum í nóvember næstkomandi og nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar.
Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur - félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Samtök iðnaðarins og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar taka höndum saman og veita árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum.
Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum:
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
B. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.
E. Hvatningarverðalun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Viðurkenningarráð (sjá hér) velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október. Tillögur um tilnefningar skal senda ráðinu með því að nýta þessi skráningarform:
Einnig má senda tillögur um tilnefningarnar í pósti:
Íslensku menntaverðlaunin
hjá / Ingvar Sigurgeirsson
Sóltún 16
105 Reykjavík
(Merkið umslagið: Íslensku menntaverðlaunin)
Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní 2023
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember
Veiting verðlaunanna 2022
Veiting verðlaunanna 2021
Veiting verðlaunanna 2020