Tryggvaskáli - auglýst eftir rekstraraðila
Auglýst er eftir áhugasömum rekstraraðila til að taka á leigu húsnæðið í Tryggvaskála á Selfossi.
Lágmarks leiguverð er 655.000 krónur á mánuði með tenginu við vísitölu neysuverðs og er eldunaraðstaða með fullkomnum eldunartækjum fyrir veitingarekstur innifalin í leiguverðinu. Leigutími ætti að hefjast sem fyrst. Sveitarfélagið Árborg leigir húsnæðið út í samráði við Tryggvaskálafélagið og er lengd leigutíma eitt samningsatriða.
Farið verður yfir allar umsóknir og þær metnar í ljósi þess leiguverðs sem boðið er, lengdar leigutíma sem óskað er og hvernig fyrirhuguð starfsemi gæti fallið að húsinu og sögu þess. Óskað er eftir greinargóðri lýsingu á fyrirætlunum í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til 15.janúar 2021 og er hægt að skila umsóknum í tölvupósti á Gísla H. Halldórsson, bæjarstjóra, gislihh@arborg.is eða Braga Bjarnason, deildastjóra, bragi@arborg.is.