Umhverfisverðlaun 2021 | Tilnefningar
Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Árborgar óskar eftir tilnefningum frá íbúum varðandi umhverfisverðlaun fyrir árið 2021.
Óskað er eftir tilnefningum vegna:
- Snyrtilegasti garðurinn
- Fallegasta gatan í Árborg
- Vel um gengin fyrirtæki í atvinnurekstri eða stofnun
- Verðlaun fyrir framúrskarandi snyrtimennsku og metnað fyrir umhverfi og náttúru
Stefnt er að því að veita verðlaunin á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi aðra helgina í ágúst ef aðstæður leyfa.
Sveitarfélagið Árborg tekur við ábendingum frá íbúum til og með 3. ágúst næstkomandi í gegnum póstfangið thjonustumidstod@arborg.is
Umhverfisnefnd Árborgar