Útboð | Frístundamiðstöð í Árborg, 1. áfangi
Fasteignafélag Árborgar slf óskar eftir tilboðum í : „Frístundamiðstöð í Árborg, 1. áfangi“.
Verkið felst í byggingu á 1. áfanga af þremur sem samanstendur af byggingu og tengibyggingu frístundamiðstöðvar í Árborg við Langholt, Selfossi auk verkfræðihönnunar hússins.
Frístundamiðstöðin hýsir ýmiss konar kennslu- og samkomurými á vegum frístundastarfs Árborgar, s.s. smíðaverkstæði, kennslueldhús, listasmiðju, aðstöðu skáta o.fl.
Húsið er steypt, á tveimur hæðum með léttbyggðu, einhalla þaki, einangrað og klætt að utan með báruáli og viðarklæðningu. Gluggar eru ál-/trégluggar með útihurðum úr áli. Innveggir eru hefðbundnir gipsplötuveggir á blikkstoðum og glerveggir. Hurðir eru harðplastklæddar. Gólf eru klædd vínýlflísum og vínýldúk. Kerfisloft eru eru úr steinullarplötum. Veggir eru málaðir. Ein lyfta er í húsinu.
Bygging frístundamiðstöðvarinnar er um 1.102 m² brúttó og tengibyggingin er um 252 m² brúttó.
Helstu magntölur:
Jarðvegsfyllingar | 2.350 m³ |
Steinsteypa | 363 m³ |
Járnbending | 31.300 kg |
Þakvirki | 887 m² |
Báruálklæðning | 518 m² |
Viðarklæðning | 340 m² |
Ál-/trégluggar | 165 m² |
Gipsveggir og gipsplötuklæðningar | 716 m² |
Vínýlfísar og -dúkar | 1.060 m² |
Innihurðir | 126 stykki |
Kerfisloft | 971 m² |
Málun | 4.738 m² |
Bent er á að bjóðendur skulu leitast við að velja vistvæn efni sem uppfylla kröfur um Svansvottun.
Verkinu skal að fullu lokið 30. maí 2024
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 miðvikudaginn 17. ágúst 2022
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar