Útboð |Nýr miðlunargeymir fyrir Selfossveitur
Selfossveitur bs óskar eftir tilboðum í verkið "Nýr miðlunargeymir fyrir Selfossveitur".
Reisa skal rúmlega 4.500 m3 hitaveitugeymi að Austurvegi 67 á Selfossi
Geymirinn verður reistur norðan við núverandi heitavatnsgeymi. Verkið felst í reisingu og klæðningu stálgeymis. Stálgeymirinn skal reisa á staðsteyptri undirstöðu og undir hluta hans er staðsteypt tengihús. Geymirinn er úr stáli með miðsúlu og þakburðarbitum. Stálplötur í þaki eru soðnar neðan á þakbita. Stálgeymi skal mála að utan en sementskústa að innan. Geyminn skal einangra með steinull og klæða að utan með álklæðningu. Pípulagnir í tengihúsum skal einangra með steinull og klæða með álklæðningu.
Helstu magntölur:
Stálplötur | 130 tonn |
Stálbitar | 29 tonn |
Steinullareinangrun | 2760 m² |
Álklæðning bols | 750 m² |
Álklæðing á þaki | 600 m² |
Pípulögn í tengihúsi – DN 80 – DN 500 | 6 m |
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2024
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 föstudaginn 31. mars 2023
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar