Útboð | Stígar í Árborg 2021
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í : „Stígar í Árborg 2021“
Verkið felur í sér malbikun, gerð burðarlags og jarðvegsskipti og einnig uppsetningu ljósastaura og plægingu ljósastrengs þar sem það á við á stígum í Árborg.
Verkið skiptist í eftirfarandi hluta.
Eyrabakkastígur:
E1: Eyrarbakkastígur (st. 2500 – 3300) Kaldaðarnesvegur – Stekkar, leggja skal út burðarlag (mulningur) og malbika þennan kafla með malbiksbreidd 2,5m.
E3: Eyrarbakkastígur (st. 400 - 3300) Flugvallavegur – Stekkar, plægja skal niður ljósastreng og setja upp ljósastaura, einnig skal setja ljósastaura við Flugvallaveg
Selfoss:
S1: Engjavegur – Langholt gegnum tjaldsvæði. Malbika skal núverandi jarðvegskiptan stíg, malbiksbreidd 3,0m og 2,5m.
S2: Íþróttavallasvæði. Malbika skal núverandi jarðvegskiptan stíg, malbiksbreidd 3,0m.
S3: Tjaldsvæði – að stíg við Grundir. Malbika skal núverandi jarðvegskiptan stíg, malbiksbreidd 2,0m.
S6: Selfoss-stígur með Ölfusá: Lækjarbakki - Hagalækur. Jarðvegsskipti, burðarlag og malbikun, malbiksbreidd 2,5m.
Helstu magntölur eru:
Gröftur | 800 m³ |
Jöfnun og þjöppun á fyllingu | 4.900 m² |
Styrktarlag | 1.600 m³ |
Burðarlag, efni | 490 m³ |
Burðarlag, útjöfnun og þjöppun | 4.900 m³ |
Malbik Y8 | 4.125 m² |
Uppsetning ljósastaura | 90 stk |
Plæging á ljósastaurastreng | 3.900 m |
Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2021
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 föstudaginn 21. maí 2021
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á Útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar