Útboð | Sunnuvegur - 2201352
Verkið felur í sér endurgerð götunnar Sunnuvegur á Selfossi. Jarðvegskipta skal götustæðið, leggja styrktarlag, burðarlag og malbika götuna.
Einnig skal setja upp ljósastaura og leggja ljósastaurastreng. Að auki skal leggja fráveitu, vatnsveitu, fjarskiptarör og hitaveitulagnir.
Helstu magntölur eru:
Gröftur | 4800 m³ |
Styrktarlag / fylling | 4800 m³ |
Malbik | 2080 m³ |
Fráveitulagnir | 588 m |
Vatnsveitulagnir | 297 m |
Hitaveitulagnir | 316 m |
Ljósastaurar | 7 stk |
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2022.
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 miðvikudaginn 16. febrúar 2022.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar