Útboð | Viðhald gatnalýsingar í Árborg
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið Viðhald gatnalýsingar í Árborg. Sjá nánari upplýsingar.
Verkið felur í sér þjónustu og viðhald á allri gatnalýsingu í sveitarfélaginu
Á svæðinu eru tveir eigendur á gatnalýsingarkerfinu þ.e. Sveitarfélagið Árborg og Vegagerðin og nær þessi samningur yfir eignir þeirra beggja. Um er að ræða 3.500 lampa og dreifikerfi sem tengist þeim.
Samningur nær til fjögra ára með möguleika á framlengingu í tvö skipti, eitt ár í senn.
Helstu magntölur eru:
Viðhald, tímagjald | 2.200 klst |
Útskipting lampa | 1.200 stk |
Varbúnaður í staurum | 600 stk |
Peruskipti | 1.650 stk |
Körfubíll | 950 klst |
Þjónustubíll | 300 dagar |
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef Ajour sem er aðgengilegur hér.
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru bjóðendur hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Útboð þetta er auglýst á hinu evrópska efnahagssvæði (EES).
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11.00 mánudaginn 23. ágúst 2021
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar