Útboð | Víkurheiði
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið Víkurheiði. Sjá nánari upplýsingar.
Verkið felur í sér gerð gatna í Víkurheiði á Selfossi
Búið er að jarðvegskipta og leggja lagnir í hluta gatnanna. Jarðvegskipta skal þau götustæði sem eftir eru og leggja styrktarlag.
Einnig skal leggja út burðarlag og malbika allar götur og gangstíga.
Setja skal upp ljósastaura og leggja ljósastaurastrengi.
Að auki skal leggja fráveitu, vatnsveitu, fjarskiptarör og hitaveitu þar sem það er eftir.
Helstu magntölur eru:
Gröftur | 22.000 m³ |
Styrktarlag | 31.500 m³ |
Malbik | 14.000 m² |
Fráveita | 1.440 m |
Vatnsveita | 1.085 m |
Hitaveitulögn | 910 m |
Uppsetning á ljósastaurum | 19 stk |
Verkið er áfangaskipt
- Áfangi er gerð götu C og lenging á götu B milli stöðva 120 - 260 án yfirborðsfrágangs en með öllum lögnum.
- Áfangi er gerð götu B frá stöð 260 – 430 m.
Gerð götu D, ásamt lögnum gegnum lóð 17.
Einnig skal rífa slitlag af götu A, breyta þverhalla og ganga frá yfirborðum allra gatna og gangstíga.
Áfanga 1 skal lokið 15. nóvember 2021. Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2022.
Útboðsgögn verða afhent á útboðkerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með 15.07.2021. Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða niður gögnum.
Frestur til að skila inn tilboðum er föstudaginn 06. ágúst. 2021, kl. 11.00
Útboðsgögn verða afhent á útboðkerfinu Ajour sem er aðgengilegur hér.
Notkunarleiðbeiningar um Ajour kerfið.
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru bjóðendur hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila tilboðum inn.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar