Malbikað við Ölfusárbrú í kvöld
Í kvöld fimmtudagskvöld 3. september er stefnt á að malbika við Ölfusárbrú. Önnur akrein verður malbikuð í einu og mun umferð á leið austur aka meðfram vinnusvæði. Ölfusárbrú verður lokuð fyrir umferð á leið vestur og hjáleið um Eyrabakkaveg.
Tekið verður tillit til forgangsaksturs Lögreglu, Sjúkrabíla og Slökkviliðs og þeim hleypt framhjá ef þörf er á.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.98.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 02:00
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.