Vilt þú eða fjölskyldan þín styðja við velferð barna?
Velferðarþjónusta Árborgar leitar að stuðningsfjölskyldum fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning í daglegu lífi. Um getur verið að ræða börn með fötlun eða börn sem njóta stuðnings barnaverndar.
Sem stuðningsfjölskylda tekur þú barn tímabundið inn á heimili þitt, til dæmis um helgar eða í stuttan tíma í senn. Markmiðið er að veita barninu öruggt umhverfi, tilbreytingu og jákvæða reynslu, um leið og létt er álagi af fjölskyldu barnsins.
Hlutverk stuðningsfjölskyldu felur meðal annars í sér:
- Að taka barn á móti á heimili sínu í stuttan tíma í senn
- Að veita barni öryggi, hlýju og stuðning
- Að leyfa barninu að taka þátt í daglegu fjölskyldulífi
- Að stuðla að félagslegri virkni og jákvæðri upplifun
Hverjir geta orðið stuðningsfjölskyldur?
Stuðningsfjölskyldur geta verið einstaklingar, pör eða fjölskyldur með eða án barna. Mikilvægast er að hafa áhuga á að styðja barn og geta boðið upp á stöðugt og öruggt heimili.
Stuðningur og greiðslur:
Veitt er ráðgjöf og handleiðsla frá velferðarþjónustu og gerður er samningur um verkefnið.
Ef þú hefur áhuga á að kynna þér hlutverkið nánar eða sækja um, hafðu samband við sigridurelin@arborg.is eða annarut@arborg.is Athygli er vakin á að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir leyfi til að starfa sem stuðningsfjölskylda. Sótt er um leyfið rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar.

