Vilt þú gerast dagforeldri í Árborg?
Auglýst er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að gerast dagforeldrar í Sveitarfélaginu Árborg.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi verktakar en umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra sem og ráðgjöf til dagforeldra og foreldra er á vegum sveitarfélagsins.
Við vekjum athygli á að niðurgreiðsla er 70.000 kr. fyrir 8 tíma vistun barns. Jafnframt er dagforeldrum veittur stofnstyrkur að fjárhæð kr. 100.000 miðað við að dagforeldri sé með leyfilegan hámarksfjölda barna í gæslu.
Ef þú hefur áhuga á að gerast dagforeldri í Árborg má finna umsóknareyðublað inni á Mín Árborg.
Nánari upplýsingar veita
Björg Maggý Pétursdóttir, ráðgjafi | bjorgm@arborg.is
Guðný I. Rúnarsdóttir, leikskólaráðgjafi | gir@arborg.is
eða í síma 480 1900