Vilt þú veita einstaklingsstuðning eða starfa sem persónulegur ráðgjafi?
Velferðarþjónusta Árborgar leitar að jákvæðum og ábyrgum einstaklingum til að starfa með börnum, ungmennum og fullorðnum sem þurfa stuðning í daglegu lífi.
Hvað felst í starfinu?
Sem stuðningsaðili og persónulegur ráðgjafi veitir þú einstaklingsmiðaðan stuðning með það að markmiði að:
-
efla sjálfstæði og sjálfstraust
-
styðja þátttöku í samfélaginu og félagslífi
-
vera fyrirmynd, stuðningur og jákvæður félagi
-
rjúfa félagslega einangrun og skapa jákvæðar upplifanir
Starfið fer fram í nánu samstarfi við þjónustunotanda, aðstandendur og starfsmenn velferðarþjónustu eftir því sem við á.
Hver getur veitt einstaklingsstuðning eða starfað sem persónulegur ráðgjafi?
Við leitum að einstaklingum sem:
-
hafa náð 18 ára aldri
-
hafa hreina sakaskrá
-
hafa áhuga á að styðja fólk á ólíkum aldri
-
eru jákvæðir, traustir og sýna frumkvæði
-
hafa góða samskiptahæfni
-
geta unnið sjálfstætt og í samstarfi við aðra
Starfstími
Um er að ræða tímavinnu á bilinu 8-15 klst. á mánuði. Starfið er sveigjanlegt og unnið samkvæmt samkomulagi.
Umsóknarferli
Sótt er um starfið í gegnum almenna umsókn sveitarfélagsins Árborgar á ráðningarvefnum Alfreð. Mikilvægt er að taka fram að umsóknin varði einstaklingsstuðning eða persónulega ráðgjöf.
Nánari upplýsingar um starf vegna einstaklingsstuðnings:
Barnateymi: sigridurelin@arborg.is
Fullorðinsteymi: hekla.dogg@arborg.is
Nánari upplýsingar um starf persónulegs ráðgjafa:
Barnavernd: annarut@arborg.is


