Viltu verða slökkviliðsmaður?
Kynningarfundur fyrir áhugasama verður í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi
þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20.00.
Brunavarnir Árnessýslu auglýsa eftir slökkviliðsmönnum, af öllum kynjum, til starfa á starfsstöðvum sínum á Selfossi, Laugarvatni, Flúðum, Reykholti, Árnesi, Hveragerði og Þorlákshöfn - búseta í Árnessýslu er skilyrði.
Um er að ræða hlutastörf í útkallsliði BÁ.