Múrbalasláttur með Sigga og Kela
Smiðja í grunnskólum Árborgar fyrir nemendur á miðstigi
15. og 22. október í grunnskólum Árborgar - frítt fyrir nemendur á miðstigi
Ertu sífellt að tromma í húsgögnin heima hjá þér?
Kannski á eldhúsborðið, skólatöskuna, eða pottana og pönnurnar í eldhúsinu?
Ef svo er, þá er þetta eitthvað fyrir þig.

Trommuleikararnir Sigurður Ingi Einarsson og Hrafnkell Örn Guðjónsson stýra stórskemmtilegri tónlistarsmiðju þar sem aðalhljóðfærið er múrbali.
Allir þátttakendur fá múrbala sem þeir binda utanum sig og tvo kjuða. Síðan er einfaldlega talið í. Taktar, break, grúv og hreyfingar, auk þess sem skoðuð verða þau fjölmörgu hljóð sem hægt er að ná úr þessum ósköp venjulegu svörtu plastfötum. Þær leyna á sér!



