2.áfangi Stekkjaskóla undirritaður
Samningur um hönnun og byggingu á 2.áfanga Stekkjaskóla undirritaður.
Þann 11. nóvember undirrituðu ÞG Verktakar ehf og Fasteignafélag Árborgar slf samning um hönnun og byggingu á 2. áfanga Stekkjarskóla. Verkefnið er alútboð og skiptist í fullnaðarhönnun og byggingu 2. áfanga skólans.
ÞG-Verktakar ehf mun vinna verkið ásamt Eflu verkfræðistofu og Arkitektastofunni Hornsteinar. 2.áfangi byggist suð-vestanmegin við 1.áfanga og telur um 3.800 m2 að stærð.
Framkvæmd er nú þegar hafin.
Mannvirkja- og umhverfissvið