Almenningssamgöngur - Nemakort
Eins og kunnugt er hefur Vegagerðin tekið við rekstri almenningssamgangna á landsbyggðinni en samningar um almenningssamgöngur á Suðurlandi, á milli SASS og Vegagerðarinnar, rann út um áramótin.
Áfram verður boðið upp á nemakort fyrir þá sem sækja nám á höfuðborgarsvæðinu.
Uppl. um hvernig sótt er um nemakortin má finna á heimasíðu Strætó, sbr. slóðina: https://www.straeto.is/is/upplysingar/landsbyggdin/nemakort-a-sudurlandi en gjaldið er óbreytt eða kr. 90.000 á önn.
Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni verður þjónustan með óbreyttu sniði árið 2020 en áréttað hefur verið við stofnunina að mikilvægt sé að sveitarfélögin á Suðurlandi komi áfram að ákvörðunum varðandi þörf og leiðarval í landshlutanum.
Samhliða því að Vegagerðin sinnir daglegum rekstri er stofnunin með í undirbúningi útboð á akstursþjónustunni og gert er ráð fyrir að nýr samningur við akstursaðila taki gildi frá og með 1. janúar 2021.