Árborg tekur upp rafrænt pósthólf á island.is
Sveitarfélagið hefur unnið að því undanfarin misseri að koma tilkynningum, reikningum og öðrum bréfasendingum til íbúa í stafrænt pósthólf hins opinbera.
Sveitarfélagið hefur unnið að því undanfarin misseri að koma tilkynningum, reikningum og öðrum bréfasendingum til íbúa í stafrænt pósthólf hins opinbera eins og kveðið er á um í lögum um stafrænt pósthólf. Íbúar og fyrirtæki sem skipta við sveitarfélagið hafa nú aðgang að sínum skjölum á öruggan máta.
Pósthólfið er aðgengilegt á www.island.is
Stafrænt pósthólf felur í sér tíma og vinnusparnað auk jákvæðra umhverfisáhrifa.
Lykil virkni og breytingar:
- Bætt þjónusta felst í aðgengi sem er tiltækt allan sólarhringinn hvar sem viðkomandi er staddur.
- Aukin skilvirkni næst með nýja pósthólfinu þar sem póstur berst um leið og hann verður til í kerfum sveitarfélagsins.
- Sveitarfélagið nýtir Strauminn, gagnaflutningsbraut hins opinbera, til að flytja gögn í pósthólf íbúa og fyrirtækja. Með því að nota stafrænt pósthólf sem birtingamiðil og Strauminn sem flutningsleið er gagnaöryggi og persónuvernd eins og best verður á kosið.