Fjölskyldusviðs sendir umsögn v/málefna innflytjenda
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Árborgar skilað nýlega inn umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021 - 2024.
Í framkvæmdaáætluninni eru kynntar aðgerðir sem endurspegla meginmarkmið laga um málefni innflytjenda nr. 116/2012 um að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna, en áhersla er lögð á fimm stoðir, þ.e. samfélagið, fjölskyldan, menntun, vinnumarkaður og flóttafólk.
Sveitarfélagið Árborg er orðið fjölmenningarlegt sveitarfélag og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Hagstofu Íslands (2020) hefur fjöldi erlendra ríkisborgara tvöfaldast á síðustu fimm árum. Nú búa um 830 manns með erlent ríkisfang í sveitarfélaginu, auk fjölda íbúa með fjölmenningarlegan bakgrunn sem eru komnir með íslenskan ríkisborgararétt. Fjölskyldusvið Árborgar hefur að undanförnu stigið mörg og mikilvæg skref í að gera þjónustuna við þennan fjölbreytta hóp betri og markvissari en þessi framkvæmdaáætlun getur án efa stuðlað að frekari eflingu málaflokksins.
Að mati fjölskyldusviðsins er framkvæmdaáætlunin metnaðarfull og umfangsmikil, en mikilvægt er að tryggja að henni fylgi nægjanlegt fjármagn svo unnt sé að framkvæma hana. Auk þess er góð eftirfylgni með framkvæmdaáætluninni nauðsynleg. Fjölskyldusvið Árborgar lýsti yfir vilja til að miðla þekkingu og reynslu sem starfsmenn fjölskyldusviðs búa yfir og sem getur nýst í umbótastarfi í þessum málaflokki á landsvísu. Vert er að nefna hér mótun langtímastefnu í málefnum innflytjenda, flóttafólks og fjölmenningar; innleiðingu á stöðumati á þekkingu nemenda af erlendum uppruna á hans sterkasta tungumáli og vinnu að handbók um móttöku og þjónustu við flóttafólk.
Slóð að drögum að tillögu til þingsályktunar og umsagnir Árborgar og annara aðila eru aðgengilegar á vefsíðu
https://samradsgatt.island.is/Skrar/$Cases/GetAdviceFile/?id=abdbbd49-4599-eb11-9ba1-005056bcce7e
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=2956