Nýr vefur: Fyrir íbúa – með íbúum
Langþráðu marki er náð í dag 11. desember þegar nýr vefur Sveitarfélagsins Árborgar er opnaður. Það var kominn tími til – mætti kannski segja – en við fögnum þessum framförum.
Nýr vefur í loftið
Langþráðu marki er náð í dag 11. desember þegar nýr vefur Sveitarfélagsins Árborgar er opnaður. Það var kominn tími til – mætti kannski segja – en við fögnum þessum framförum. Sagan er reyndar ekki öll því að ákveðið hefur verið að íbúar verði hafðir með í ráðum á lokaskrefum í hönnun vefjarins. Í því skyni eru sett ábendingarform á allar síður þar sem kallað er eftir ábendingum íbúa. Þessum ábendingum verður safnað saman og við ætlum að nota þær strax til úrbóta og fullhönnun vefjarins. Við vonumst til að þessu verði vel tekið af íbúum og að þeir noti tækifærið til að leggja sitt af mörkum.
Það er einlæg ósk Svf. Árborgar að þessi nýju vefur verði íbúum og sveitarfélaginu til gagns og flýti fyrir frekari framþróun þjónustunnar. Þjónusta við íbúana og upplýsingagjöf til þeirra þarf að verða eins góð og framast er unnt – og sniðin að þörfum íbúa. Á leið til betri þjónustu mun starfsfólk sveitarfélagsins og þekking þess, hugmyndir íbúanna og tækifæri stafrænnar þróunar leiða okkur áfram.
Árborgarvefurinn hefur verið unninn í samstarfi við Hugsmiðjuna og er fyrirtækinu færðar kærar þakkir fyrir. Fjöldi starfsmanna hefur einnig lagt mikið af mörkum í því skyni að vefurinn verði vel úr garði gerður og er einnig þakkað sitt framlag. Ólafur Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúi Árborgar, hefur leitt þessa vinnu fyrir sveitarfélagið í haust og er honum þakkað sérstaklega fyrir að bæta þessu verki á önnur störf.
