Grisjun við sundlaugargarðinn
Ákveðið hefur verið að fella 4 aspir af 7 við vesturhlið sundlaugargarðsins.
Verið er að bregðast við réttmætum ábendingum gesta laugarinnar um skuggamyndun á stórum hluta útisvæðis. Í stað þeirra aspa sem fjarlægðar verða mun sveitarfélagið gróðursetja falleg reynitré í staðinn.
Í framhaldi verður farið í að grisja asparraðir á lóð Vallaskóla, Engjavegsmegin til að auka birtu í garðinum.