Heppnir þátttakendur í jólagluggaleik Árborgar 2020
Metfjöldi barna tóku þátt í jólagluggaleiknum í ár. Þrír þáttakendur voru dregnir úr fjölda innsendra lausna af Gísla Halldóri Halldórssyni, framkvæmdastjóra Sv. Árborgar í viðurvist bæjarritara sveitarfélagsins.
Verðlaun fyrir jólagluggaleikinn 2020 hlutu
Árný Ingvadóttir
Hekla Dís Einarsdóttir
Tristan Freyr Guðmundsson
Til hamingju snillingar!
Jólagluggaleikur Sveitarfélags Árborgar gengur út á að frá 1. desember til 24. desember opnar einn jólagluggi í stofnun eða fyrirtæki í sveitarfélaginu og í hverjum glugga er geymdur einn bókstafur sem setja á inn í þátttökueyðublað.
Stafirnir mynda setningu sem í finnast svör við þeim spurningum sem þarf að svara. Þegar búið er að finna lausnina er henni skilað í bókasafn Árborgar Selfossi eða í Sundhöllina á Selfossi. Að lokum eru dregnir út þrír heppnir þátttakendur sem svarað hafa öllum spurningum rétt.
Sveitarfélagið Árborg þakkar fyrirtækjum og stofnunum sem tóku þátt í jólagluggunum 2020 kærlega fyrir þeirra framlag og hlökkum til að endurtaka leikinn í desember.