Aukið íbúalýðræði í gegnum Betri Árborg
Sveitarfélagið Árborg leitar til íbúa við áframhaldandi framþróun á þjónustu og aðstöðu í sveitarfélaginu í gegnum vefsíðuna Betri Árborg.
Bendum við á tvö ný málefni inn á "Betri Árborg" þar sem leitað er eftir ábendingum og hugmyndum frá íbúum til að bæta enn frekar þjónustu sveitarfélagsins. Markmiðið er að skapa vettvang til að auka þátttöku íbúa og tækifæri þeirra til að koma sínum hugmyndum á framfæri.
Nú geta áhugasamir íbúar, með einföldum hætti, komið sinni hugmynd á framfæri um þau málefni sem eru til umræðu hverju sinni inn á "Betri Árborg". Auðvelt er fyrir notendur að setja inn ábendingu og hugmyndir undir hvert málefni og/eða taka undir aðrar. Þau málefni sem eru kominn inn á Betri Árborg eru eftirfarandi: