Jón Heiðar Grétarsson úr Sunnulækjarskóla sigraði lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árborg
Lokakeppni Stóru upplestrakeppninnar í Árborg var haldin í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í skólahúsnæðinu á Stokkseyri þann 19. mars.
Lokakeppnin er samstarfsverkefni grunnskólanna og Skólaþjónustu Árborgar og hefur undirbúningur staðið yfir frá Degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl.
Á undirbúningstímabilinu fá allir nemendur 7. árgangs grunnskóla sveitarfélagsins þjálfun í vönduðum upplestri. Í hverjum skóla fór fram undankeppni og eru það sigurvegarar hennar sem taka þátt í stóru upplestrarkeppninni.
Að þessu sinni voru keppendur 11 talsins, þau voru: Arney Hekla Steingrímsdóttir og Ísak Guðni Birgisson úr BES, Manúela Tanja Eiðsdóttir, Jón Heiðar Grétarsson og Saga Sveinsdóttir úr Sunnulækjarskóla, Katla Margrét Ægisdóttir, Rúnar Baldvin Felixson og Vigdís Birta Veigarsdóttir úr Stekkjaskóla, Christel Dís Grímsdóttir, Kári Vilberg Jónsson og Tómas Birgir Frímannsson úr Vallaskóla.
Stóra upplestrarkeppnin fór þannig fram að keppendur lásu þrisvar sinnum. Í fyrstu umferð var lesið textabrot úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson, í annarri umferð lásu nemendur ljóð eftir íslensk ljóðskáld sem öll fjalla um fugla í íslenskri náttúru og í þriðju umferð lásu nemendur ljóð að eigin vali.
Kynnir keppninnar var Charlotte Sigrid á Kósini, verkefnastjóri og umsjónarkennari í BES. Á milli upplestranna var boðið upp á glæsileg tónlistaratriði sem nemendur úr BES sáu um. Ída Þorgerður Ingadóttir lék á selló við undirleik Uelle Hahndorf tónlistarkennara. Þorbergur Óttar Haraldsson lék dúett á flautu ásamt tónlistarkennaranum sínum henni Kristínu Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og að lokum léku systkinin Þorbergur Óttar og Steinunn Inga Haraldsbörn og Hugi Scheving Riley á flautu ásamt Kristínu.
Dómnefndina skipuðu þau Hildur Bjargmundsdóttir, Hrund Harðardóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og Tinna Ósk Björnsdóttur. Formaður dómnefndar var Hrund Harðardóttir og hafði hún á orði að nefndinni hefði verið mikill vandi á höndum þar sem keppendur voru mjög vel undirbúnir og stóðu sig allir mjög vel.
Sigurvegari keppninnar í ár var Jón Heiðar Grétarsson úr Sunnulækjarskóla, í öðru sæti var Katla Margrét Ægisdóttir úr Stekkjaskóla og í þriðja sæti var Vigdís Birta Veigarsdóttir einnig úr Stekkjaskóla. Sigurvegararnir fengu að launum glæsilegar bókagjafir sem Bragi Bjarnason bæjarstjóri afhenti.
Sigurvegurum og keppendum sem og skólunum er óskað til hamingju með glæsilega keppi og flottan árangur.

