Kynning tillögu aðalskipulagsbreytingar | Austurbyggð 2
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2010-2030.
Um er að ræða svæði sem afmarkast af Gaulverjabæjarvegi í austri, hesthúsahverfi í norðri og vestri, og fyrirhugaðrar íbúðarbyggðar í Austurbyggð II í suðri.
Austurbyggð 2 Greinargerð Aðalskipulagsbreyting - vinnslutillaga
Austurbyggð 2 Aðalskipulagsbreyting - vinnslutillaga
Breytingin felur í sér stækkun íbúðarsvæðis í landi Dísarstaða um 5,8 ha. og samsvarandi minnkun hesthúsasvæðis. Göngu- og hjólastígur, og reiðstígur á mörkum íbúðar- og hesthúsasvæðis færast og liggja á hesthúsasvæði á nýjum mörkum svæðanna. Reiðleið meðfram austurhólum verður felld niður. Heimild er gefin fyrir tveimur nýjum aðkomum að íbúðarsvæðinu frá Austurhólum og/eða Suðurhólum sem útfærast nánar í deiliskipulagi.
Tillagan er einnig til sýnis á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi, ef aðstæður vegna Covid-19 leyfa.
Spurningum og skriflegum ábendingum um tillöguna er hægt að koma á framfæri á netfangið skipulag@arborg.is.
Ábendingar þurfa að berast fyrir 15. nóvember næstkomandi.
Virðingarfyllst,
Sigurður Andrés Þorvarðarson | Skipulagsfulltrúi Sveitarfélags Árborgar