Málþing um leikskóla og móttökuáætlun fyrir nýliða
Vinnuhópur um leikskólamál í Sveitarfélaginu Árborg var skipaður af fræðslunefnd á síðasta ári og hélt hann sinn fyrsta fund af mörgum 31. maí 2021.
Eitt af verkefnum vinnuhópsins var að undirbúa málþing sem var svo haldið 30. mars síðastliðinn.
Þátttaka var afar góð en á þriðja hundrað manns tóku þátt í umræðum og hlýddu á erindi. Málþingið var einnig sent út í beinu streymi.
Drög að skýrslu frá vinnuhópnum voru kynnt í fræðslunefnd miðvikudaginn 18. maí síðastliðinn, sjá nánar hér.
Á sama fundi fræðslunefndar var ný móttökuáætlun fyrir nýliða í leikskólum Árborgar kynnt og staðfest af nefndinni.
Aðstoðarleikskólastjórarnir Ingunn Helgadóttir og Sólveig Dögg Larsen sáu um kynninguna. Móttökuáætlun fyrir nýliða í leikskólum sveitarfélagsins var unnin af aðstoðarleikskólastjórum skólaárið 2021 - 2022. Meginmarkmið áætlunarinnar er að stuðla að árangursríkri móttöku starfsfólks í leikskólum sveitarfélagsins. Einnig að auka vellíðan starfsfólks við upphaf starfsferils þannig að það verði hluti af sterkum faghópi.
Móttökuáætlunina er hægt að nálgast hér.