Rausnarleg gjöf til Sveitarfélags Árborgar
Á dögunum gaf Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður sveitarfélaginu Árborg málverkið „Kafarann“ sem nú hefur verið sett upp í Sundhöll Selfoss.
Um verkið segir Guðrún: „Fyrir mér er sund og köfun farvegur fyrir hina stöðugu leit að svörum í djúpi sjálfsins. Verkið fjallar um þessa tilfinningu og hve allt er í raun líkt, lífverurnar, gróðurinn, vatn, eldur og jörð.“
Málverkið Kafarinn eftir Guðrún Arndísi Tryggvadóttur er málað með olíu á hörstriga árið 2021 og hangir á veggnum í ganginum sem snýr að útilauginni.
Guðrún er daglegur gestur í lauginni og fannst því við hæfi að verkið fái að hanga þar til frambúðar enda sé hennar markmið að myndlist fái meira vægi og verði sjáanlegri í sveitarfélaginu Árborg.
Jafnframt hefur Guðrún sett upp Pop-up sýningu á átta vatnslitamyndum í norðurgangi Sundhallar Selfoss, en þær voru hluti af hugmyndavinnu hennar fyrir verkið.
Guðrún er fædd í Reykjavík en hefur búið á Suðurlandi síðan 2006. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, École nationale supérieure des Beaux-Arts í París og Akademie der Bildenden Künste í München þar sem hún útskrifaðist með láði.
Guðrún hefur haldið sýningar hér heima, í Evrópu og Bandaríkjunum og hlotið fjölda viðurkenninga, bæði fyrir myndlist sína og störf á sviði nýsköpunar en hún hefur verið frumkvöðull á ýmsum sviðum, stofnað og rekið myndlistarskóla og listræna hönnunarstofu sem hún rak í Þýskalandi og hér á landi um árabil.
Guðrún stofnaði einnig og rak umhverfisvefinn náttúran.is um tíu ára skeið.
Aðalefniviður í myndlist Guðrúnar er olía á striga en hin stóru málverk hennar eru mjög persónuleg og byggjast á sterkum hugmyndafræðilegum og oft sögulegum grunni. Guðrún rekur einnig fræðslu- og útgáfufélagið Listrými og starfrækir vinnustofu sína á Selfossi.
Meira um list og feril Guðrúnar má sjá á vef hennar tryggvadottir. com.
Bæjarráð þakkar fyrir höfðinglega gjöf, sem mun sóma sér vel í Sundhöll Selfoss.