Nýr rekstraraðili í Tryggvaskála á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg auglýsti í janúar sl. eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri í Tryggvaskála á Selfossi. Fimm umsóknir bárust en einn aðili dró umsókn sína til baka.
Eftir viðtöl við umsækjendur og úrvinnslu umsókna var ákveðið að ganga til samninga við Tómas Þóroddsson og Idu Grundberg, eigendur Kaffi Krúsar og Vors, um veitingarekstur í Tryggvaskála á Selfossi.