Samstarf um aukin sýnileika og gagnsæi í umhverfismálum
Sveitarfélagið Árborg hefur gert samstarfssamning við Laufið, fyrstu grænu íslensku upplýsingaveituna.
Samningurinn felur í sér aðgang að hugbúnaði Laufsins og greiningum auk aðkomu sjálfbærniráðgjafa Laufsins við fræðslu, innleiðingu og ráðgjöf varðandi sjálfbærni.
Mikill styrkur af samstarfi við Laufið
Sveitarfélagið Árborg hefur gert samstarfssamning við Laufið, fyrstu grænu íslensku upplýsingaveituna. Samningurinn felur í sér aðgang að hugbúnaði Laufsins og greiningum auk aðkomu sjálfbærniráðgjafa Laufsins við fræðslu, innleiðingu og ráðgjöf varðandi sjálfbærni.
Farið verður í kortlagningu á stöðu mála hjá stofnunum og skólum á vegum sveitarfélagsins auk þess að útvega Laufinu aðstöðu fyrir kynningarfundi með áhugasömum fyrirtækjum í Árborg sem vilja leggja áherslu á sjálfbæra þróun í starfsemi sinni og miðla á gagnsæjan hátt upplýsingum um sjálfbærni, sér og öðrum til hagsbóta. Umhverfismál og sjálfbærni er samstarfsverkefni alls samfélagsins.
Fyrsta græna upplýsingaveitan
Laufið er hagnýt verkfærakista sem hefur þann mikilvæga tilgang að stuðla að og ýta undir sjálfbæra þróun opinberra stofnanna og fyrirtækja. Markmiðið er að valdefla neytendur og gefa þeim kost á að taka upplýstar ákvarðanir um neyslu sína eftir því hversu vel stofnanir og fyrirtæki eru að standa sig í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð.
Laufið skiptist í fimm lauf og græn skref sem tengjast meðal annars Heimsmarkmiðunum.
Hvert lauf inniheldur skýrar og mælanlegar aðgerðir:
- Flokkun úrgangs - flokkun úrgangs á ábyrgan hátt
- Umhverfisstefna - skýr umhverfisstefna, mótuð af starfsfólki, kynnt hagaðilum og birt á laufid.is
- Miðlun þekkingar - stutt netnámskeið á vegum Laufsins
- Loftslagsáhrif - losun gróðurhúsalofttegunda reiknuð og samdráttaráætlun sett fram
- Hringrásarsamfélag - mótun innkaupstefnu með áherslu á notað umfram nýtt
Grænu skrefin eru 118 talsins og eru sérsniðin að ólíkum þörfum viðskiptavina
Grænu skrefin innihalda hugmyndir að stórum sem smáum umhverfisaðgerðum og skiptast í flokka eins og t.d. mötuneyti, innkaup og orkusparnað. Þær upplýsingar sem fyrirtæki setja inn á vef Laufsins birtast í leitarvél á www.laufid.is sem gerir Laufið að fyrstu grænu íslensku upplýsingaveitunni.
Uppbygging og lausnaleit Laufsins hefur tekið rúm tvö ár og hefur verkefnið verið unnið í nánu samstarfi við Umhverfisráðuneyti og Umhverfisstofnun