Samvinna eftir skilnað - SES
Velferðarþjónusta Árborgar býður foreldrum 0 - 18 ára barna upp á sérhæfða skilnaðarráðgjöf.
Um er að ræða ráðgjöf, til að koma í veg fyrir og/eða draga úr ágreiningi foreldra sem vilja stuðla að betri foreldrasamvinnu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Það er ekki skilnaðurinn sjálfur sem veldur mestum skaða, heldur hvernig staðið er að honum gagnvart börnunum.
Samvinna eftir skilnað (Samarbejde efter skilsmisse - SES) var upphaflega þróað í Danmörku og hafa rannsóknir sýnt marktækan mun á líðan þeirra sem taka þátt í verkefninu og þeirra sem ekki gera það. Um er að ræða gagnreynt námsefni sem er ætlað að hjálpa foreldrum við að takast á við breytingar og áskoranir sem algengar eru í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Hér fyrir neðan er stutt myndband um þjónustuna.
Foreldrum stendur til boða
Námsefnið hefur þrjú meginþemu:
- Áhrif skilnaðar á foreldra
- Viðbrögð barna við skilnaði
- Samvinna foreldra við skilnað
Rafrænt námsefni á www.samvinnaeftirskilnad.is
Einnig verður íbúum Árborgar boðið upp á fjögurra daga námskeið undir yfirskriftinni Samvinna eftir skilnað - barnanna vegna. Sjá nánar um námskeiðið hérna fyrir neðan.
Námskeið fyrir foreldra hjá SES ráðgjöfum Árborgar
Athugið að SES þjónusta eru foreldrum að kostnaðarlausu.
Hefur þú áhuga á að kynna þér málið frekar?
Ef þú hefur áhuga á að kynna þér málið frekar bendum við á heimasíðuna www.samvinnaeftirskilnad.is eða senda tölvupóst á felagsthjonusta@arborg.is.